63% nemenda í 2. bekk geta lesið sér til gagns

Skóli og frístund

""

Lesskimun var lögð fyrir nemendur í 2. bekk grunnskólanna í apríl og sendu 32 skólar niðurstöður til skóla– og frístundasviðs. Meginniðurstaðan er sú að 922 nemendur af 1.462, eða rúmlega 63%, ná a.m.k. 65% árangri á prófinu og geta því lesið sér til gagns. Hlutfallið er þremur prósentustigum lægra en það var árið 2016 og hið lægsta síðan 2013.

Nemendur sem ekki ná 65% árangri á lesskimunarprófinu eru 540 eða tæp 37% af öllum hópnum. Af þessum 540 er hópur sem nær árangri á bilinu 50-64% en þeir nemendur teljast vera við það að ná tökum á lestrinum. Þessi hópur telur nú 281 nemanda sem jafngildir rúmum 19% af heildinni. Hópurinn sem nær 0-49% árangri þarf samkvæmt skilgreiningu á sérstökum stuðningi að halda í lestri. Næstum 12% nemenda nær 95-100% árangri í skimuninni og telst þessi hópur hafa náð mjög góðum tökum á lestrinum. Hópurinn er einu og hálfu prósentustigi stærri en hann var árið 2016. 

Um 66% stúlkna í lesskimun 2017 geta lesið sér til gagns og 60% drengja. Munurinn á hlutföllum kynjanna í ár er því 6 prósentustig og og er sá mesti í fjögur ár. 

Sjá niðurstöður lesskimunar í 2. bekk vorið 2017.