Yfirkjörstjórnir Reykjavíkurkjördæma norður og suður koma saman til fundar í Ráðhúsi Reykjavíkur, fundarherbergi borgarráðs, föstudaginn 13. maí nk. milli kl. 13.00 og 15.00 til að veita viðtöku listum meðmælenda frambjóðenda til embættis forseta Íslands.
Stefnt er að því að vottorð yfirkjörstjórnanna samkvæmt 4. gr. laga nr. 36/1945 um framboð og kjör forseta Íslands verði afhent á fundi föstudaginn 20. maí nk. kl. 13.00.
Mæli kjósandi með fleiri en einum frambjóðanda verður nafn hans fjarlægt af báðum/öllum listum.
Eyðublöð fyrir lista meðmælenda má nálgast á kosningavef innanríkisráðuneytisins www.kosning.is en þar má einnig finna upplýsingar um framkvæmd kosninganna. Óskað er eftir því að listar meðmælenda séu blaðsíðusettir.
Til að flýta fyrir yfirferð og vinnslu er mælst til þess að meðmælendalistar verði skráðir með rafrænum hætti á þar til gerðu vefsvæði á www.island.is áður en þeim er skilað til yfirkjörstjórnar.
Kosningavefur Reykjavíkurborgar verður á slóðinni www.reykjavik.is/kosningar. Fyrirspurnum má beina til skrifstofu borgarstjórnar gegnum netfangið kosningar@reykjavik.is.
Reykjavík, 6. maí 2016
Yfirkjörstjórn í Reykjavíkurkjördæmi norður,
Erla S. Árnadóttir
Arnar Þór Stefánsson
Fanný Gunnarsdóttir
Páll Halldórsson
Tómas Hrafn Sveinsson
Erla S. Árnadóttir
Arnar Þór Stefánsson
Fanný Gunnarsdóttir
Páll Halldórsson
Tómas Hrafn Sveinsson
Yfirkjörstjórn í Reykjavíkurkjördæmi suður,
Sveinn Sveinsson
Heimir Örn Herbertsson
Sjöfn Ingólfsdóttir
Þóra Hallgrímsdóttir
Þuríður Jónsdóttir
Sveinn Sveinsson
Heimir Örn Herbertsson
Sjöfn Ingólfsdóttir
Þóra Hallgrímsdóttir
Þuríður Jónsdóttir