Vont veður í lok skóladags

Skóli og frístund

""
Búist er við versnandi veðri á höfuðborgarsvæðinu þegar líður á daginn, sérstaklega í efri byggðum. 
Reiknað er með að að veður fari versnandi upp úr klukkan 14.00 í dag og þá sérstaklega í efri byggðum og verði verst frá kl. 16.00-19.00. Mikilvægt er að foreldrar í þeim skólahverfum fylgist vel með veðri og tilkynningum skóla- og frístundamiðstöðva ef þau þyrftu að fylgja börnum sínum heim úr frístund að lokinni dvöl í dag.



Þá gæti veðrið haft áhrif á þátttöku barna í starfsemi skólahljómsveita, félagsmiðstöðva og öðru félagsstarfi.