Viltu kynnast mér?

Skóli og frístund

""
Fjölmenningarvika stendur yfir í leikskólanum Hálsaskógi á Barnamenningarhátíðinni. 
Sett hefur verið upp skemmtileg sýning í leikskólanum af afrakstri ýmissa verkefna sem börnin hafa unnið að og á munum frá hinum og þessum heimsálfum. Deildirnarnar völdu sér ákveðna heimsálfu út frá áhuga barnanna og þau unnu svo margvísleg verk úr þeim menningarheimi. Einnig hefur matseðill vikunnar í Hálsaskógi einkennst af þjóðlegum réttum frá ýmsum löndum. Þannig hafa börnin fengið mousakka frá Búlgaríu, pólska rauðrófusúpu og indverskan fiskrétt. 
 
Sýningin í Hálsakógi verður opin fram á helgi og eru allir velkomnir að koma og skoða.