Villa Bergshyddan er gestaíbúð í Stokkhólmi. Fólk sem starfar að listum og menningu og býr í einhverri höfuðborga Norðurlanda getur leigt íbúðina í eina eða tvær vikur á ári hverju og er dvalargjald fyrir eina viku 1600 sænskar krónur.
Bústaðurinn er þrjú herbergi og eldhús í endurbyggðu húsi frá 18. öld. Við dvölina gefst tækifæri til að kynnast Stokkhólmi og mynda tengsl með mögulega samvinnu í huga.
Umsóknareyðublöð má finna á heimasíðu Stokkhólms. Í umsókn skal tilgreina tilgang dvalar og óskir um dvalartíma ásamt kynningu á umsækjanda.
Nánari upplýsingar veitir Auður Halldórsdóttir, verkefnastjóri á skrifstofu menningar- og ferðamálasviðs hjá Reykjavíkurborg, í síma 411 6020 og netfangið audur.halldorsdottir@reykjavik.is, og Anne-Marie Andersson hjá menningarmálasviði Stokkhólmsborgar í gegnum netfangið anne-marie.a.andersson@stockholm.se.