Vilja bæta mannlíf og efla félagsauð

Menning og listir Mannréttindi

""
Hverfissjóður Reykjavíkur hefur auglýst umsóknarfrest vegna styrkja ársins og er hann til miðnættis föstudaginn 15. apríl. 
Einstaklingar, hópar, félagasamtök, fyrirtæki og stofnanir geta sótt um styrki til verkefna í einu eða fleiri hverfum eða almennt í borginni og getur styrkupphæð numið allt að 700.000 krónur.


Tilgangur Hverfissjóðs Reykjavíkur er að styðja við verkefni sem stuðla að eftirtöldum þáttum í hverfum borgarinnar:
  • bættu mannlífi og eflingu félagsauðs,
  • fegurri ásýnd borgarhverfa,
  • auknu öryggi í hverfum borgarinnar,
  • samstarfi íbúa, félagasamtaka eða fyrirtækja við borgarstofnanir.
Nánari upplýsingar er að finna á reykjavik.is/hverfissjodur og þar er að finna reglur sjóðsins og tengingar vegna umsókna en sótt er um á Mínum síðum á Rafrænni Reykjavík.
 
Hverfissjóður Reykjavíkurborgar byggir á samfélagssjóði SPRON sem var færður borginni til varðveislu og úthlutunar. Í stjórn Hverfissjóðs Reykjavíkur sitja samkvæmt skipun borgarstjóra: Ólöf Örvarsdóttir, Óskar Dýrmundur Ólafsson og Jón Halldór Jónasson. Verkefnisstjóri stjórnar sjóðsins er Lilja Sigurbjörg Harðardóttir.