Heimsdagur barna verður haldinn hátíðlegur í menningarhúsum Borgarbókasafnsins í Gerðubergi, Spönginni, Kringlunni og Sólheimum laugardaginn 27. febrúar kl. 13-16. Á Heimsdegi barna gefst börnum og fylgdarmönnum þeirra tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttum og spennandi smiðjum og njóta margskonar skemmtunar víða um borgina.
Að þessu sinni verður víkingaþema og mun andi Hallgerðar Langbrókar og Gunnars á Hlíðarenda svífa yfir vötnum.
Margt skemmtilegt verður í boði t.d að gera sinn eigin víkingabúning og -sverð og halda hugrakkur í bardagasmiðju. Þá verður hægt að fá stórfenglegar bardagagreiðslur eða búa til sín eigin víkingavinabönd. Rúnaritun og skartgripagerð í anda víkinganna verður einnig á dagskrá og á sveimi má sjá Sleipni og völvuna sem spáir fyrir um ókomin ævintýri.
Dagskráin á hverjum stað er kynnt á heimasíðunni borgarbokasafn.is og á Facebook síðum menningarhúsanna. Dagskráin er birt á tíu tungumálum auk íslensku.
Ekki missa af Heimsdegi barna! Allir velkomnir – aðgangur ókeypis.