Börnin á frístundaheimilunum Dramalandi við Austurbæjarskóla, Eldflauginni við Hlíðaskóla, Halastjörnunni við Háteigsskóla, Selinu við Melaskóla, Skýjaborgum við Vesturbæjarskóla og Undralandi við Grandaskóla fóru í réttindagöngu á dag.
Rösklega þrjú hundruð börn stormuðu með kröfuspjöld niður Skólavörðustíginnminntu og minntu á réttindi sín og á Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Gengið var niður í Þjóðleikhús þar sem Guðni Th. forseti beið þeirra ásamt borgarstjóra og fulltrúum leikhússins. Á litrík kröfuspjöld voru skrifuð mikilvægustu orðin; ást, friður, öryggi og jafnrétti. Forseti Íslands og borgarstjóri ávörpuðu börnin og Þjóðleikhúsið bauð upp á sýningu með brotum úr barnaleikritum sem eru í sýningu og væntanlegri uppfærslu á Fjarskalandinu eftir hann Góa.
Réttindaganga barna er farin árlega í tilefni af barnaréttindaviku allra frístundaheimila í Hlíðum Miðborg og Vesturbæ. Hún er lokahnykkur vikunnar þar sem lögð er áhersla á fræðslu um réttindi barna, Barnasáttmálann, lýðræðisleg vinnubrögð og að kenna börnunum að þekkja mun á réttindum og forréttindum.
Rauði þráðurinn í starfi frístundaheimilanna er að börnin hafi val um þátttöku og viðfangsefni og að lýðræðisleg vinnubrögð séu í heiðri höfð þannig að rödd þeirra, skoðanir og þarfir leggi grunninn að því starfi sem unnið er í hverju frístundaheimili. Í réttindavikunni er sérstök áhersla lögð á það að kenna börnunum um réttindi barna, barnasáttmálann, lýðræðisleg vinnubrögð og að þekkja muninn á réttindum og forréttindum. Frístundastarf er góður vettvangur til að vinna með réttindi barna og barnalýðræði, en notast er við verkfæri hins óformlega náms til þess að miðla þekkingunni, meðal annars í gegnum fjölbreytt og skapandi verkefni og leiki, sem og samræður og ígrundun.
Barnasáttmálinn fjallar um ýmis mikilvæg réttindi barna, en þeim má í grófum dráttum skipta í þrjá flokka; vernd, umönnun og þátttöku. Almennur skilningur er á því að börn eigi rétt á umhyggju og vernd, jafnt foreldra sinna sem og samfélagsins alls, enda eru vernd og umhyggja í hugum flestra tengd grunnréttindum barna órjúfanlegum böndum. Réttur barna til þátttöku og þess að tekið sé tillit til skoðana þeirra á málum er þau varða í samræmi við aldur þeirra og þroska og er hins vegar alla jafna ekki jafn mikið í umræðunni og fólki er kannski ekki jafn tamt að tengja þessi þætti grunnréttindum barna. Með löggildingu barnasáttmálans var réttur barna til þátttöku hins vegar gerður jafnrétthár rétti þeirra til verndar og umhyggju. Á það vilja börnin benda með réttindagöngunni og er þetta verkefni liður í því að styrkja rödd barnanna og gera þau meðvituð um réttindi sín og annarra.