Þjónustumiðstöð Breiðholts leitar að starfsmönnum til að sinna félagslegri liðveislu fyrir einstaklinga sem þurfa stuðning. Um er að ræða starf sem felur í sér aðstoð við ýmsar daglegar athafnir og að njóta menningar- og félagslífs sem veitir tilbreytingu í daglegt líf. Sérstaklega er auglýst eftir starfsmönnum fyrir tvítugan karlmann sem hefur einhverfugreiningu.
Um er að ræða tímavinnu og er vinnutími sveigjanlegur.
Hæfniskröfur eru:
- Góð almenn menntun.
- Hæfni í mannlegum samskiptum, samstarfshæfni og sveigjanleiki.
- Vilji og löngun til að starfa með fólki.
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Nánari upplýsingar veitir Inga María Vilhjálmsdóttir verkefnastjóri á Þjónustumiðstöð Breiðholts (Inga.Maria.Vilhjalmsdottir@reykjavik.is), sími 4111300.