Þriðjudaginn 12. janúar var haldinn fræðslu- og samræðufundur um fjölmenningarlegt leikskólastarf í leikskólanum Ösp. Um þrjátíu leikskólakennarar sóttu fundinn.
Nichole Leigh Mosty, leikskólastjóri á Ösp, kynnti fyrir leikskólastjórum leiðir til að örva mál og vinna að málrækt tvítyngdra barna og mikilvægi þess að eiga gott samstarf við foreldra. Leikskólinn Ösp hefur innleitt metnaðarfullt og framsækið leikskólastarf þar sem áhersla er lögð á virðingu og jákvætt viðhorf gagnvart fjölbreyttri menningu og tungumálum. Þá leggur leikskólinn áherslu á að mynda traust og gagnvirk samskipti við alla foreldra en Nichole segir að þau séu grunnurinn að því að að efla vellíðan og öryggi barna og foreldra .
Ragnheiður Sigurbjörnsdóttir sérkennslustjóri í Nóaborg sagði frá Comeniusarverkefninu We all smile in the same language, sem var samstarfsverkefni Íslands og sjö annarra Evrópulanda. Verkefnið sem stóð yfir í tvö ár lagði áherslu á fjölmenningarlega kennslufræði í þátttökuskólunum og voru verkefnin sem Ragnheiður sagði frá ótal mörg og skemmtileg. Sérstaka athygli vakti frásögn af þátttökuskólanum í Svíþjóð sem innleiddi fjölmenningarleg vinnubrögð í námskrá skólans í tengslum við stærðfræði, læsi, sköpun og fleira þrátt fyrir að í skólanum væru afar fá börn af erlendum uppruna. Sá leikskóli vildi ekki síst vinna með það viðhorf barna, foreldra og starfsfólks að samfélög heimsins eru flest öll fjölmenningarleg og hugmyndafræði fjölmenningarlegrar menntunar kemur öllu skólastarfi til góða.
Fríða Bjarney Jónsdóttir, verkefnastjóri fjölmenningar hjá SFS, fór yfir leiðarvísi um skráningu á framförum barna í íslensku sem öðru máli, Einn leikskóli, mörg tungumál, og fjallaði um það hvernig leikskólar gætu sett upp áætlun um skráningu. Þá sagði Þuríður Óttarsdóttir deildarstjóri á Ösp frá því hvernig unnið hefur verið með leiðarvísinn í leikskólanum en þau vinnubrögð hafa m.a. aukið þátttöku alls starfsfólks í markvissri vinnu með málörvun og málrækt.
Að lokum vakti Fríða athygli á Alþjóðlega móðurmálsdeginum sem haldinn er 21. febrúar ár hvert. Leikskólar voru hvattir til þess að vinna með fjölbreytt móðurmál barnanna í barnahópnum en fjölmargar hugmyndir og gagnlegar ábendingar um mikilvægi móðurmálsins er að finna á http://tungumalatorg.is/21feb/