Miðvikudaginn 20. apríl sl. eða síðasta vetrardag var haldið skemmtilegt skákmót í Hagaskóla fyrir krakka á grunnskólaaldri. Mótið er haldið af Vesturgarði í samstarfi við Skákakademíu Íslands. Styrktaraðili er Melabúðin og þökkum við þessum aðilum kærlega fyrir þeirra framlag. Hátt í 50 krakkar tóku þátt, en mótið þykir afskaplega gott og vel heppnað og er gaman að sjá að krakkar eru að koma ár eftir ár, en þetta er fjórða árið í röð sem þetta er haldið. Veitt eru verðlaun í fjórum flokkum, 1.-3. bekkur, 4.-7. bekkur, 8.-10. bekkur og svo í stúlknaflokki. Einnig er veittur bikar fyrir þann skóla sem sendir flesta þátttakendur og að þessu sinni var það Álfhólsskóli sem vann hann þetta árið, líkt og í fyrra.