Cambridgeborg í Massachusetts ríki í Bandaríkjunum hefur áhuga á að gerast systraborg Reykjavíkurborgar.
Erindi frá borgarstjórn Cambridge var kynnt í borgarráði í morgun. Borgarráð lagði til að skrifstofu borgarstjóra og borgarritara verði falið að kanna nánar grundvöll fyrir samstarf borganna tveggja.
Borgarstjórn Cambridge hefur falið framkvæmdastjóra sínum (e. city manager), Richard C. Rossi, að kanna í samvinnu við Brian Corr, framkvæmdastjóra Friðarnefndar Cambridgeborgar (Cambridge Peace Commission), möguleikana á systraborgasamstarfi við Reykjavíkurborg.
Samstarfið hefði það að markmiði að efla og styrkja samskipti borganna tveggja.
Í erindi Cambridge-borgar er Reykjavík lýst sem borg með langa sögu, að hún sé stærsta byggð á Íslandi, að þar sé að finna miðju allrar starfsemi í landinu og að borgin hafi undanfarin ár gengið í gegnum endurreisn. Cambridge borg gefur þær ástæður fyrir því að leita eftir samstarfinu að Reykjavíkurborg leggi áherslu á að rækta tækifæri í frumkvöðlastarfsemi, t.am. á sviðum líftækni, upplýsingatækni og lífvísinda.
Háskólarnir í Reykjavík eru einnig nefndir svo og stefna um húsnæði fyrir alla (e. affordable housing options). Að auki hafi Reykjavíkurborg að fullu skuldbundið sig til að takast á við loftslagsbreytingar. Þetta hafi hún gert með innleiðingu sjálfbærra starfshátta, fjárfestingu í endurnýjanlegum orkugjöfum og með því að taka forystu á alþjóðavettvangi um að skapa árangursríkt og sjálfbært samstarf milli borgar og fyrirtækja í nærsamfélaginu.
Þá segir í erindinu að Cambridgeborg, íbúar hennar og starfsfólk, hafi af miklu að miðla til að styðja við þessa og aðra þætti hjá Reykjavíkurborg.
Cambridge er staðsett í Middlesex sýslu í Massachusetts-ríki á norðausturströnd Bandaríkjanna, nefnd eftir Cambridge háskóla á Englandi. Íbúafjöldi er um 110.000 og borgin er hluti af Boston svæðinu, staðsett rétt norður af Boston. Flestir íbúa Cambridge vinna á sviðum æðri menntunar, stjórnsýslu, líftækni, heilbrigðis, frumkvöðlastarfsemi og internettækni.
Í Cambridge eru tveir háskólar í fremstu röð á heimsvísu, Harvard University og Massachusetts Institute of Technology (MIT)