Reykjavíkurborg leiðréttir verðlagseftirlit ASÍ hvað sorphirðugjöld varðar.
Fréttir upp úr verðlagseftirliti ASÍ um sorphirðu- og sorptengd gjöld Reykjavíkurborgar er byggð á röngum forsendum. ASÍ gerir þau mistök að bæta atriðum við gjöld heimila án þess að gera ráð fyrir því að borgarbúar hafa val hvað tunnur og þjónustu snertir.
ASÍ notar gjaldið úr könnun sinni árið 2015 sem þá var fyrir endurvinnslustöðvagjald, bláa tunnu og gráa tunnu og bætir einnig við grænni tunnu sem kostar 8.400 kr. á ári. „Græna tunnan er valfrjáls og flestir skila inn grárri á móti eða taka spartunnu í staðinn,“ segir Guðmundur Benedikt Friðriksson skrifstofustjóri hjá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar. „ASÍ er því að bera saman verð fyrir tvær tunnur við verð fyrir þrjár tunnur og slengir fram 31% hækkun á gjaldi sem er alrangt,“ segir hann.
Þjónusta sem er í boði í Reykjavík er í raun mun meiri en fram kemur í könnun ASÍ en auk hennar bjóða fyrirtæki á markaði söfnun á efndurvinnsluefnum við íbúðarhús. Margir íbúar kjósa þá þjónustu og lækka á sama tíma sorphirðugjöld sem greidd eru Reykjavíkurborg.
Við samanburð á sorphirðugjöldum milli sveitarfélaga þarf að hafa í huga mismunandi hirðutíðni, þjónustu sem er í boði, og taka þarf til skoðunar aðstöðu til meðhöndlunar úrgangs. Sum sveitarfélög þurfa til dæmis að brenna úrgang eða flytja langar leiðir til urðunar sem hækkar gjöldin þar.
Sé gjaldið í Reykjavík borið saman við önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu er gjaldið 26.320 krónur að meðaltali á hverja íbúð í Reykjavík með endurvinnslustöðvagjaldinu. Til samanburðar er gjaldið í Kópavogi 22.600 kr., í Garðabæ 22.900 kr. og í Hafnarfirði 30.600 kr. Hirðutíðni er hins vegar meiri í Reykjavík en t.d. Kópavogi, blá tunna er hirt a 21 dags fresti samanborið við 28 í Kópavogi.
Að jafnaði hækkar sorphirðugjald í Reykjavík um 4,8% milli ára, úr 25.118 kr. í 26.320 kr. Kynningarseðill um val á tunnum og þjónustu hefur nú verið sendur inn á heimili í Reykjavík og geta borgarbúar valið bláar tunnur undir pappír, grænar undir plast eða gráa eða spartunnu undir blandaðan úrgang. Reykvíkingar hafa tekið þessu valfrelsi vel og hafa þegar verið pantaðar 1.700 grænar tunnur auk þess sem pöntunum rignir inn. Með því að flokka geta heimili í Reykjavík auðveldlega minnkað rúmmál sorps í tunnum og lækkað gjöld sín með því að skila grárri tunnu og fá græna og spartunnu í staðinn. Þá hafa íbúar einnig frelsi til að velja aðeins gráa tunnu eða spartunnu og nýta sér net grenndarstöðva fyrir flokkunarefni, ss. pappír, plast, gler og fleira.