Velkominn í leikskólann minn

Skóli og frístund Menning og listir

""
Verk barna í átta leikskólum hafa verið sett upp í Borgarbókasafninu í Grófinni, en leiðarstefið þar er hvernig bjóðum við ný börn velkominn í leikskólann okkar. 
Verkin á sýningunni fjalla um það hvernig leikskólabörn geta boðið ný börn velkominn, hvað þau geta gert til að aðstoða nýja barnið og hvað þau geti lært af því. Þá var spurt hvernig bjóða megi þau börn velkomin sem ekki tala íslensku? 
 
Börnin unnu verk sín út frá svörum við þessum spurningum og eftir að hafa skoðað myndbandið Við fæðumst fordómalaus - hvað svo? sem Ævar vísindamaður vann fyrir Innflytjendaráð. Ævar kom á opnun sýningarinnar í Borgarbókasafninu 19. apríl og skoðaði sýninguna með börnunum. 
 
Sýningin er einn fjölmargra viðburða á Barnamenningarhátíð.  Velkomin á sýninguna Velkomin í leikskólann minn!