Vel gengur að innleiða stefnu um fjölmenningarlegt skóla- og frístundastarf

Skóli og frístund Menning og listir

""
Rúm tvö ár eru liðin síðan metnaðarfull stefnumótun um fjölmenningarlegt skóla- og frístundastarf undir yfirskriftinni Heimurinn er hér var samþykkt í borgarstjórn.
Margt hefur áunnist á þeim tíma sem liðinn er síðan stefnan tók gildi en teymi sérfræðinga á vegum skóla- og frístundasviðs hefur haldið utan um innleiðingu hennar. Teymið er skipað þeim Dagbjörtu Ásbjörnsdóttur, Dröfn Rafnsdóttur og Fríðu Bjarneyju Jónsdóttur sem leiðir starfið. 
Meðal þeirra verkefna og aðgerða sem þegar hefur verið hrint í framkvæmd í innleiðingarferlinu má nefna:
  • Reglum um fjármagn til grunnskóla vegna íslenskukennslu var breytt sumarið 2015 í kjölfar innleiðingar á matstækinu Milli mála sem Dr. Elín Þöll Þórðardóttir vann að í samstarfi við skóla- og frístundasvið. Samkvæmt nýjum reglum fá skólar úthlutað fjármagni vegna nemenda sem þurfa stuðning í íslensku sem öðru máli svo lengi sem þeir þurfa á honum að halda en ekki samkvæmt reglum um dvalartíma og skyldleika tungumáls fyrstu tvö árin eins og áður var. Þetta er afar mikilvæg niðurstaða enda hafa rannsóknir hér á landi og erlendis sýnt að það þrátt fyrir að það taki börn ekki nema um 1-2 ár að ná tökum á nýju tungumáli sem nýtist þeim í félagslegum samskiptum en það tekur börn 5-7 ár að ná tökum á skólaorðaforða.
  • Ráðinn hefur verið verkefnastjóri fjölmenningar fyrir grunnskóla og jafnframt veitir Miðja máls og læsis ráðgjöf og fræðslu um mál og læsi tví- og fjöltyngdra barna.
  • Boðið hefur verið upp á fjölbreytta fræðslu fyrir kennara og starfsfólk í skóla- og frístundastarfi, m.a. í samstarfi við Menntavísindasvið HÍ.
  • Við úthlutun úr þróunarsjóði skóla- og frístundaráðs 2015 og 2016 var sérstaklega horft til verkefna á sviði fjölmenningar og barna með annað móðurmál en íslensku.
  • Tengiliðir fjölmenningar í leikskólum borgarinnar hafa frá árinu 2011 fundað 3-5 sinnum yfir skólaárið þar sem miðlað er þekkingu, fræðslu og færni á jafningjavettvangi. Sambærileg teymi hafa verið stofnuð í grunnskólum borgarinnar.
  • Fjármagn til túlkaþjónustu fyrir foreldra hefur verið aukið.
  • Upplýsingagjöf til foreldra hefur verið bætt m.a. með útgáfu upplýsinga um grunnskóla á fimm tungumálum, bæklingum um frístundastarf og bættri upplýsingagjöf til foreldra á heimasíðum leikskóla og grunnskóla.
  • Gerður hefur verið samstarfssamningur við samtökin Móðurmál um að kennarar og börn á þeirra vegum fái aðgang að húsnæði borgarinnar til kennslu án endurgjalds. 
  • Áherslur Barnamenningarhátíðar árið 2016 voru fjölmenningarlegar. Fjölmargir viðburðir höfðu það því að markmiði að fagna fjölbreyttum tungumálum og menningu barna og ungmenna.
Stefnt er að því að ljúka innleiðingarferli stefnunnar Heimurinn er hér í lok næsta árs, m.a. með ráðstefnu fyrir kennara og annað starfsfólk í skóla- og frístundastarfi. 


Sjá skýrslu um innleiðingu fjölmenningarstefnuna Heimurinn er hér sem kynnt var á fundi skóla- og frístundaráðs 10. ágúst 2016.