Upptakturinn er orðinn að árvissum viðburði í upphafi Barnamenningarhátíðar, en þar eru veitt tónsköpunarverðlaunum barna og ungmenna og verk þeirra flutt af okkar færasta listafólki.
Upptakturinn hefst á því að börnum og ungmennum er gefið tækifæri til að senda inn tónsmíð eða drög að henni og vinna markvisst úr hugmyndum sínum með fulltingi listamanna. Þau verk sem valin eru eru síðan fullunnin í vinnustofu með aðstoð tónskálda og fagfólks í tónlist. Að því ferli loknu hafa orðið til ný tónverk.
Tónverkin voru svo flutt á glæsilegum tónleikum í Kaldalóni í Hörpu þann 19. apríl. Flutt voru verk eftir 18 ung tónskáld sem klappað var lof í lófa að tónleikunum loknum.
Upptakturinn er samstarfsverkefni Barnamenningarhátíðar, Listaháskóla Íslands, RÚV og Hörpu.
Tónverkin sem flutt voru í gær voru eftir:
Tómas B. Mathiesen
Agnes Engla Valdimarsdóttir
Hrönn Júlía Stefánsdóttir
Tanja Styrmisdóttir
Andrea Sigríður Viðarsdóttir
Andrea Sigríður Viðarsdóttir
Benedikt Gylfason
Emilía Þórný Ólafsdóttir
Frosti Björn Brynjarsson
Mikael Trausti Viðarsson
Matthías Löve
Bernharð Máni Snædal
Bernharð Máni Snædal
Emma Eyþórsdóttir
Úlfhildur Valgeirsdóttir
Sigrún Valgeirsdóttir
Kristín Sesselja.
Ásgeir Kjartansson
Ásgeir Kjartansson
Ása Ólafsdóttir
Ketill Hugi Halldórsson