Tvær stúlkur úr Réttarholtsskóla heimsóttu borgarstjóra í dag og ræddu við hann um stjórnmálaþátttöku ungs fólks.
Ragnheiður Dóra Jónsdóttir og Álfrún Cortes Ólafsdóttir eru báðar nemendur í 10. bekk í Réttarholtsskóla. Þær komu á fund Dags. B. Eggertssonar borgarstjóra í dag til að taka viðtal við hann um hvernig greiða megi fyrir því að hlustað sé á stjórnmálaskoðanir ungs fólks. Viðtalið er liður í lokaverkefni þeirra í grunnskóla, heimildarþáttar sem þær munu vinna á næstu tveimur vikum. Verkefnið nær yfir nokkrar faggreinar, s.s. þjóðfélagsfræði, lífsleikni og upplýsingatækni.
- Fimmtán ára stelpa getur haft alveg jafn gildar skoðanir á einhverju málefni og sextugur karl - sögðu þær stöllur. Og ungt fólk hugsar miklu meira um pólitík en margan grunar. Það viljum við að komi fram í þessari mynd og því ætlum við líka að koma á framfæri við borgarstjóra.