Umsóknagátt fyrir stofnframlög

Velferð Skipulagsmál

""

Tekin hefur verið í notkun ný vefsíða á vef Reykjavíkurborgar þar sem þar til bærir aðilar geta sótt um stofnframlög til kaupa eða byggingar á íbúðum fyrir tekjulágar fjölskyldur og einstaklinga.

Borgarráð samþykkti fyrir skömmu reglur um stofnframlög til kaupa eða byggingar á íbúðum fyrir fjölskyldur og einstaklinga sem eru undir tekju- og eignamörkunum samkvæmt 10. grein laga nr. 52/2016 um almennar íbúðir. Stofnframlögunum er ætlað að stuðla að því að í boði verði leiguíbúðir í Reykjavík á viðráðanlegu verði fyrir þá sem þurfa á því að halda, þ.m.t. fyrir námsmenn, ungt fólk, aldraða, fatlað fólk og fólk sem ekki er fært um að sjá sér fyrir húsnæði sökum félagslegra aðstæðna eða verulegs fjárhagsvanda.

Þessi markmið falla vel að húsnæðisstefnu og húsnæðisáætlun Reykjavíkurborgar. Til að ná þessum markmiðum skal lögð sérstök áhersla á nýbyggingar og að fjölga leiguíbúðum.

Umsóknarfrestur um stofnframlög rennur út 15. október nk. Brýnt er að væntanlegir umsækjendur kynni sér reglur Íbúðalánasjóðs og Reykjavíkurborgar vel og gæti þess að senda inn umsókn og öll tilskilin gögn tímanlega.

Sækja um stofnframlög