Umhyggja, félag langveikra barna, er 35 ára um þessar mundir og af því tilefni veitti félagið Brúarskóla myndarlegan styrk.
Formaður Umhyggju, Guðmundur Björgvin Gylfason afhenti nemendum í Brúarskóla skjal til staðfestingar styrkveitingunni upp á 400.000 kr. Nemendur ætla nú að setja fram hugmyndir um hvernig ráðstafa megi þessum góða fjárstyrk.