No translated content text
Allt að fjórðungur íbúða leiguíbúðir
Skipulag svæðisins gerir ráð fyrir metnaðarfullri uppbyggingu með áherslu á góða hönnun og vandaðar útfærslur. Í Vogabyggð eru áformaðar framkvæmdir á vegum Reykjavíkurborgar og Veitna við gerð gatna, torga, stíga, strandstíga, landfyllinga, grjótvarna og nýrra stofnlagna, útsýnis- og göngupalla í samræmi við hugmynd að nýju deiliskipulagi. Auk þess er gert ráð fyrir göngubrú og stíflu við Háubakkatjörn, brú yfir Naustavog, færslu á Kleppsmýrarvegi og færslu skólpdælustöðvar.
Áhersla er lögð á fjölbreytta ferðamáta gangandi, hjólandi, í strætó og akandi á fólksbílum. Hámarkshraði í hverfinu verður 30 km og umferð á forsendum gangandi og hjólandi. Strætó mun fara aðalgötuna og verða tengingar við aðliggjandi stofnstígahjólreinar í götunni.