Evrópski tungumáladagurinn er í dag og er hann tækifæri til að fagna öllum þeim fjölbreyttu tungumálum sem töluð eru í skóla- og frístundastarfi í borginni.
Að kunna mörg tungumál og geta átt í samskiptum þvert á menningu og tungumál er kunnátta sem verður sífellt mikilvægari. Í skóla- og frístundastarfi borgarinnar eru töluð yfir 50 tungumál af þeim sem þar nema, leika og starfa.
Í dag gefst tækifæri í skólum og frístundastarfi til að fagna þessum fjölbreytileika með margs konar tungumálaverkefnum. Þá verður á morgun, 27. september, haldinn fræðslu- og samræðufundur fyrir kennara og starfsfólk í leikskólum, grunnskólum og frístundaheimilum um virkt tvítyngi/fjöltyngi.
Í stefnu skóla- og frístundasviðs borgarinnar, Heimurinn er hér, er lögð áhersla á að börn og ungmenni með annað móðurmál en íslensku nái tökum á virku tvítyngi. Í virku tvítyngi felst að um leið barn nær tökum á íslensku sem öðru máli heldur það áfram að þróa og efla móðurmál sitt.
Tungumálafjársjóðnum var líka fagnað á Café lingua í Gerðubergi á dögunum þegar fjölskyldur frá Sýrlandi miðluðu fróðleik um land sitt og tungu - sjá myndband.