Tónlistarnám sem nýttist líka leikskólabörnum

Skóli og frístund

""
Nemendur í 6. og 7. bekk í Kelduskóla Korpu unnu skemmtilegt tónmenntaverkefni á vormisserinu og útsettu undirleik fyrir leikskólalög fyrir börnin í leikskólanum Bakkabergi.
 
 
 
 
Svanur Bjarki Úlfarsson tónmenntakennara hefur unnið með snjallforritið GarageBand með nemendum í Kelduskóla undanfarin ár. Að þessu sinni fólst verkefnið í að gera undirleik við nokkur vinsæl leikskólalög, gefa út á disk og færa börnunum í leikskólanum Bakkaberg þau til afnota. 
 
Nemendur kynntust m.a. bókstafshljómum og hvernig spila er eftir þeim og síðan var þeim skipt í tveggja til þriggja manna hópa og úthlutað leikskólalagi með bókstafshljómum. Einnig þurftu þeir að hafa í huga í hvaða takti lagið var, 3/4 eða 4/4 takti.
 
Þá var hafist handa við að útsetja og ákveða trommutakt og hvaða hljóðfæri yrðu notuð og hvar. Svo var komið að því að púsla því öllu saman. Svanur Bjarki segir að notast hafi verið við smart hljóðfærin í forritinu og nemendum leiðbeint með að setja saman fleiri hljóðfæri. "Þegar lögin voru tilbúin fórum við í sameiningu yfir lögin, sungum þau saman og fundum út í sameiningu hvort þyrfti að hægja á þeim eða hraða. Þegar öll þessi vinna var búin var undirleikurinn settur á geisladisk sem við fórum svo með í leikskólann og afhentum. Við áttum skemmtilega stund með börnunum á elstu deildinni og sungum með þeim þrjú lög af disknum."
 
Það var mikil eftirvænting hjá nemendum í Kelduskóla þegar þeir komu í gamla leikskólann sinn færandi hendi - og þau vildu helst ekki fara. Sjá myndband frá heimsókninni