Heilbrigðiseftirlitið hvetur hesthúsaeigendur til að tæma þrær í hesthúsahverfum.
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur vill benda hesthúsaeigendum í Reykjavík á að skv. gr. 5 í samþykkt um hesthús og hesthúsahverfi skal tæma taðþrær reglulega og áður en þær fyllast. Þrærnar skulu ávallt tæmdar þegar hross eru komin í haga, þó eigi síðar en 1. júlí ár hvert.
Heilbrigðiseftirlitið hvetur þá hesthúsaeigendur sem ekki hafa tæmt þrær á sínum vegum að gera það nú þegar. Leitast skal við að nýta hrossatað til jarðræktar eða annarra sambærilegra nota, en að öðrum kosti flytja það á þar til ætlaðan móttökustað. Hvorki skal dreifa húsdýraáburði á vatnsverndarsvæðum, nema með sérstakri heimild Heilbrigðiseftirlits, né á stöðum þar sem hætta er á mengun vatns og jarðvegs.
Mikilvægt er að ganga þrifalega um taðþrær í hesthúsabyggð til að koma í veg fyrir mengun og ónæði af völdum meindýra s.s. flugna sem í taðið sækja.