Öll starfsemi Vesturgarðs, þjónustumiðstöðvar Vesturbæjar, flyst frá Hjarðarhaga yfir á Laugaveg 77 til þjónustumiðstöðvar Miðborgar og Hlíða frá og með mánudeginum 5. september.
Símanúmer nýrrar sameinaðar þjónustumiðstöðvar er 411 1600 og netfangið er vmh@reykjavik.is. Opnunartími á Laugaveginum er 8.30 til 16.00 alla virka daga. Framkvæmdastjóri þjónustumiðstöðvar Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða er Sigþrúður Erla Arnardóttir. Hjá sameinaðri þjónustumiðstöð starfa 420 starfsmenn en þar af eru 80 sem starfa við þjónustu og rágjöf að Laugavegi 77.
Þjónustumiðstöðin veitir þverfaglega og samræmda velferðarþjónustu til einstaklinga og fjölskyldna í Vesturbæ, Miðborg og Hlíðum. Á miðstöðinni er sérfræðiþjónustu fyrir leik- og grunnskóla, daggæsluráðgjöf, frístundaráðgjöf og önnur fagleg þjónustu til stofnana og félagasamtaka í hverfunum. Þjónustumiðstöðin er þekkingarstöð í fjölmenningu og margbreytileika og hefur á að skipa starfsfólki sem er sérhæft í málefnum útlendinga og utangarðsfólks.
Á þjónustumiðstöðinni er lögð áhersla á samstarf við aðrar stofnanir og félagasamtök í hverfunum, til dæmis í forvarnarstarfi. Má þar til dæmis nefna grunn- og leikskóla, félagsmiðstöðvar, lögreglu, íþróttafélög og trúfélög. Hverfisráðin halda fundi sína í þjónustumiðstöðinni.