Þjónustumiðstöð Breiðholts auglýsir eftir stuðningsfjölskyldu fyrir flóttafólk

Velferð Mannréttindi

""
Auglýst er eftir traustu og jákvæðu fólki sem getur tekið börn í helgarvistun. Hafir þú áhuga á mannlegum samskiptum og afar gefandi verkefnum þá er hlutverk stuðningsfjölskyldu áhugavert tækifæri til að láta gott af sér leiða. Um er að ræða flóttafjölskyldu sem samanstendur af pari með þrjú ung börn.
 
Þjónustumiðstöð Breiðholts er nú þegar í samvinnu við margar fjölskyldur sem taka reglubundið börn til dvalar á heimili sín. Reynslan hefur sýnt að stuðningsfjölskyldur vinna öflugt forvarnarstarf til að tryggja og viðhalda festu og öryggi í lífi þeirra barna sem til þeirra koma. Stuðningsfjölskyldur eru ætlaðar börnum með fötlun eða raskanir eða flóknar félagslegar aðstæður.
 
Helstu verkefni og ábyrgð:
Að taka barn eða börn í umsjá í skamman tíma til að létta álagi af fjölskyldu barnsins. Um er að ræða 1-2 helgar í mánuði, eða eftir samkomulagi.



Hæfniskröfur:
-Góð, almenn menntun
-Hæfni í mannlegum samskiptum, samstarfshæfni og sveigjanleiki
-Vilji og löngun til að starfa með fólki
-Sjálfstæði og frumkvæði
 
Nánari upplýsingar veitir Inga María Vilhjálmsdóttir verkefnisstjóri á Þjónustumiðstöð Breiðholts, s. 411-1300,