Nemendur upplifa að gert sé ráð fyrir því í kynfræðslunni að allir séu gagnkynhneigðir.
Sólveig Rós Másdóttir vann á árinu 2015 verkefni í samvinnu við Mannréttindaskrifstofu Reykjavíkurborgar og Skóla- og frístundasvið Reykjavíkur sem styrkt var af Nýsköpunarsjóði námsmanna.
Markmið verkefnisins var að skoða hvort að kynfræðsla í unglingadeildum Reykjavíkur tæki tillit til hinsegin nemenda eða hvort að fræðslan gangi út frá því að nemendur séu gagnkynhneigðir.
Niðurstöðurnar sýna að þó að kennarar reyni að hafa hinsegin nemendur í huga við kennslu þá sé það upplifun nemenda að gert sé ráð fyrir því að allir séu gagnkynhneigðir þangað til að annað kemur í ljós. Að auki ríkir mikil þögn um trans- og intersex nemendur. Því er ekki hægt að segja að hinsegin nemendur séu að fá kynfræðslu við sitt hæfi. Hér eru því mikil tækifæri til að bæta kennsluefni og kennsluaðferðir og opna umræðuna um fjölbreytileika nemenda og þeirra þarfir.
Rannsóknina með yfirskriftinni Typpið mun finna þig - gagnkynhneigð, grunnskólinn og hinsegin má lesa hér.