Taekwondo, tónlist og tómstundahús

Skóli og frístund

""

Börnin í Klettaskóla stunda nú kóresku bardagaíþróttina Taekwondo en orðið sjálft þýðir einmitt vegur þess sem notar hendur og fætur í lífs-baráttunni.

Fjörutíu og sex börn í 1.-4. bekk í Klettaskóla æfa Taekwondo í frístundaheimilinu Guluhlíð og er mikil ánægja meðal barna og foreldra með þennan nýja vettvang til sjálfseflingar.



Með tilkomu Tómstundahúss á lóðinni við Guluhlíð hefur tekist að skapa faglegan ramma um allt frístundastarfið fyrir börn með sérþarfir. Þar fer fram skipulagt hópastarf þar sem sérhvert barn fær sinn tíma í tónlist, Taekwando, íþróttum og dansi.



Margrét Rannveig Halldórsdóttir, forstöðukona í Guluhlíð, segir að börnin séu mjög áhugasöm um tómstundastarfið, þau setji sér markmið, séu kappsömu og fagni nýjum sigrum. Þá sé litrófið í fagstarfinu orðið breiðara og lagður hafi verið grunnur að samstarfi við Íþróttasamband fatlaðra um skipulagt íþróttastarf. Í fyrravetur var í fyrsta sinn efnt til Frístundahreysti fyrir börn með sérþarfir en það er skipulagt á sama hátt og Skólahreysti í almennu grunnskólunum. Það kapp sem börnin sýndu á þeim viðburði í vor sannfærði alla viðstadda um að skapa þyrfti aðstæður fyrir öll börn til að stunda tómstundir í umhverfi sem hentar þeim.