Sýningarstjóraspjall um Ytri höfnina

Mannlíf Menning og listir

""
Markús Þór Andrésson sýningarstjóri ræðir við gesti um Ytri höfnina, útskriftarsýningu Listaháskóla Íslands 2016. Spjallið verður sunnudaginn 1. maí kl. 16 í Hafnarhúsi
Á sýningunni í Hafnarhúsinu eru verk áttatíu nemenda sem ljúka nú BA stigi í myndlistardeild og hönnunar- og arkitektúrdeild. Verk þeirra endurspegla nám, rannsóknir og listsköpun þriggja ára.
 

Nafn sýningarinnar, Ytri höfnin, er fengið að láni frá samnefndri ljóðabók Braga Ólafssonar og vísar til óræðs staðar úti fyrir landi þar sem skip kasta akkerum tímabundið á ferðalagi sínu um heiminn. Nemendur yfirtaka Hafnarhúsið með svipuðum hætti, staldra þar við í tvær vikur og halda síðan hver í sína áttina.