Svifryksmengun í borginni

Umhverfi Heilbrigðiseftirlit

""
Styrkur svifryks (PM10) verður líklega yfir sólarhringsheilsuverndarmörkum í Reykjavík í dag, fimmtudaginn 31. mars, en mörkin eru 50 µg/m3.
Í dag er þó nokkur vindur, götur þurrar og engar líkur á úrkomu. Gert er ráð fyrir vætu í nótt og fyrramálið og hæglætisveðri eftir hádegi á morgun sem ætti að draga úr svifryksmengun.
 
Í töflunni má sjá hálftímagildi fyrir styrk svifryks (PM10) klukkan 12:30 í dag.
 
 
Staðsetning mælistöðvar
Styrkur svifryks (PM10)
(µg/m3)
 
Grensásvegur
214
Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn
43
Bólstaðarhlíð 38
43
Holtavegur 11
82
 

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fylgist náið með loftgæðum borgarinnar og sendir frá sér viðvaranir og leiðbeiningar ef ástæða þykir til.


Hægt er að fylgjast með styrk svifryks á og annarra mengandi efna á www.reykjavik.is/loftgaedi en þar má sjá kort yfir mælistaði í Reykjavík m.a. fastar loftgæðamælistöðvar á Grensásvegi og í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum.



Loftgæðafarstöðvar Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur er nú staðsettar við leikskólann Stakkaborg í Bólstaðarhlíð 38 og við frístundaheimilið Glaðheima, Holtavegi 11.