Sumarhátíð í Grænuborg

Skóli og frístund

""
Það var hopp og hí á Grænuborg í dag þegar börnin héldu sumarhátíð í blíðskaparveðri.

 
Sumahátíðin fór fram inni og úti. Hoppukastali vakti að venju mikla lukku og öll börnin fengu andlitsmálningu og mátti sjá ofurhetjur, birni, mýs og íslenska fánann í andlitum leikskólabarnanna. Hátíðinni lauk svo með skrúðgöngu um næsta nágrenni Grænuborgar og var gengið fylktu liði með lúðrasveit sem léku m.a. Öxar við ána og hituðu þar með upp undir þjóðhátíðardaginn á morgunn. 
 
Sumarhátíðin í Grænuborg er árlegur viðburður og er jafnan beðið með mikilli tilhlökkun.