Opnað hefur verið fyrir umsóknir í styrktarsjóð hverfisráðs Breiðholts fyrir árið 2016. Umsóknarfrestur er til og með 10. apríl. Umsóknareyðublað má nálgast með því að smella hér. Sjóðurinn er starfræktur í samræmi við reglur um úthlutun styrkja á vegum hverfisráða. Einstaklingar, félög, fyrirtæki og stofnanir geta sótt um styrki í sjóðinn vegna viðburða og verkefna.
Árið 2016 er lögð áhersla á að styrkja verkefni sem tengjast og taka mið af framtíðarsýn og stefnumiðum hverfisráðs Breiðholts.
Umsóknareyðublað fyrir styrktarsjóð hverfisráðs Breiðholts fyrir árið 2016. Hægt er að skrifa texta beint í umsóknarformið, en nauðsynlegt er að vista eyðublaðið fyrst í tölvu áður en það er fyllt út svo efni glatist ekki.
Hafa þarf eftirfarandi í huga við umsóknargerðina:
1. Einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki og stofnanir geta sótt um styrki vegna sérstakra viðburða eða verkefna.
2. Ekki er gert ráð fyrir styrkjum til að standa undir rekstrarkostnaði.
3. Ef tveir eða fleiri aðilar eiga í samstarfi um verkefni þurfa allir að staðfesta umsóknina með undirritun.
4. Styrkþegar skulu láta þess getið í kynningarefni að þeir hafi hlotið styrk frá viðkomandi hverfisráði.
5. Eftir að verkefni lýkur skulu styrkþegar skila inn greinargerð um nýtingu styrksins.
Hverfisráð Breiðholts tekur afstöðu til styrkumsóknanna á fundum sínum. Öllum umsóknum verður svarað skriflega. Hverfisstjóri Breiðholts annast umsýslu með styrkveitingum hverfisráðsins.
Umsóknarfrestur er til og með 10. apríl 2016.
Útfylltar umsóknir má senda í tölvupósti á Arnar Snæberg Jónsson verkefnisstjóra á Þjónustumiðstöð Breiðholts í netfangið arnar.snaeberg.jonsson@reykjavik.is eða með póstinum á Hverfisráð Breiðholts v/ styrktarsjóðs, Álfabakka 12, 109 Reykjavík.