Styrkir á vegum hverfisráðs Miðborgar
Hverfisráð Miðborgar auglýsir hér eftir áhugasömum einstaklingum, stofnunum og félagasamtökum til að sækja um í sjóð ráðsins, en hverfisráðið mun úthluta að hámarki 500.000 kr. þann 1. desember 2016, en umsóknir þurfa að hafa borist fyrir 1. nóvember 2016.
Styrkir á vegum Hverfisráðs Miðborgar – reglur um úthlutun
1. Markmið með styrkjum Hverfisráðs er að styrkja ýmis verkefni og starfsemi sem á einn eða annan
hátt styður við eða stuðlar að ýmsum verkefnum og uppákomum í Miðbæ Reykjavíkur.
2. Hverfisráðið ákveður í sameiningu hvort viðkomandi umsækjandi fái þann styrk sem sótt er um.
3. Árleg framlög eru að hámarki 500.000 kr. en úthlutað verður úr sjóðnum 1. desember 2016.
4. Umsóknir skulu hafa borist fyrir 1. nóvember 2016 til verkefnisstjóra Þjónustumiðstöðvar Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða á netfangið: hordur.heidar.gudbjornsson@reykjavik.is
5. Umsóknir eru metnar með hliðsjón af:
a) markmiðum sem lýst er og hvort líklegt sé að þeim verði náð
b) hvort verk- og tímaáætlun sé raunhæf
c) hvort unnt sé að meta framvindu verksins
6. Greiðslur úr sjóðnum verða greiddar út í einni greiðslu til þeirra aðila sem hljóta styrk úr sjóðnum.
7. Þeir aðilar sem fá úthlutað styrk skulu skila skýrslu um framvindu verkefnisins til verkefnastjóra Þjónustumiðstöðvar Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða í síðasta lagi ári eftir að styrkurinn er greiddur.
8. Hverfisráð getur óskað eftir því við styrkþega að þeir kynni verkefni sín, en ráðið metur hvort þörf er á því hverju sinni.
Ef það eru einhverjar spurningar vegna þessa er best að hafa samband við Hörð í síma 411-1600 eða með því að senda honum tölvupóst á netfangið: hordur.heidar.gudbjornsson@reykjavik.is
Hverfisráð Miðborgar