Styrkir mannréttindaráðs Reykjavíkurborgar

Velferð Skóli og frístund

""

Ert þú með spennandi hugmynd?  Við styrkjum hvers kyns sjálfsprottið starf, frjáls félagasamtök og framtak einstaklinga á sviði mannréttinda. 

Auglýst er eftir umsóknum um styrki mannréttindaráðs Reykjavíkurborgar.
 
Markmiðið með styrkveitingum er að styðja við hvers kyns sjálfsprottið starf, frjáls félagasamtök og framtak einstaklinga á sviði mannréttinda og stuðla að farsælli framþróun í borgarsamfélaginu, jafnræði borgarbúa og fjölbreyttu mannlífi. Að sama skapi að styðja við hvers konar starf sem vekur athygli á eða stendur vörð um grundvallarréttindi borgarbúa.
 
Hægt er að sækja um styrki með því að fylla út rafrænt eyðublað sem finna má hægra megin á síðunni.
 
Umsóknarfrestur er til og með 20. apríl 2016 og einungis eru teknar til greina umsóknir sem berast innan tilskilins frests og uppfylla þær kröfur sem reglur mannréttindaráðs Reykjavíkurborgar kveða á um. Við mat á umsóknum munu reglur Reykjavíkurborgar um styrki og mannréttindastefna Reykjavíkurborgar vera höfð til hliðsjónar. Viðburðir eða verkefni eru ekki styrkt eftir á. Umsóknir verða metnar með hliðsjón af eftirfarandi:
 
• markmiðum sem lýst er og hvort líklegt sé að þeim verði náð

• hvort verk- og tímaáætlun sé raunhæf

• hvort unnt sé að meta framvindu verksins

• hvort skilagreinar og fyrri verkefni sem styrk hafa hlotið uppfylli lágmarkskröfur

• væntanlegum árangri og ávinningi fyrir umrædda starfsemi

• fjárhagsáætlun og greinargerð um aðra fjármögnun sem einnig skal fylgja umsókn
 
Reglur mannréttindaráðs um styrki má nálgast hægra megin á síðunni. Styrkumsókn felur í sér að umsækjendur undirgangast ákvæði reglna Reykjavíkurborgar um styrki. Gert er ráð fyrir að úthlutun mannréttindaráðs verði lokið um miðjan maí.
 
Fyrirspurnir og óskir um nánari upplýsingar má senda á netfangið mannrettindi@reykjavik.is