Nemendur í Ingunnarskóla, Ártúnsskóla og Árbæjarskóla fóru með sigur af hólmi.
7. mars fóru fram úrslit í Stóru upplestrarkeppninni í Árbæ og Grafarholti. Keppnin fór fram í Árbæjarkirkju og kepptu sjö skólar til úrslita í hverfinu; Árbæjarskóli, Ártúnsskóli, Dalskóli, Norðlingaskóli, Ingunnarskóli, Selásskóli og Sæmundarskóli. Hver skóli sendi tvo fulltrúa í keppnina.
Vinningshafar voru Sigrún Nanna Sævarsdóttir í Ingunnarskóla sem náði fyrsta sæti, Guðrún Steinunn Sigurgeirsdóttir í Ártúnsskóla sem lenti í öðru sæti og Dagur Sigurðarson í Árbæjarskóla sem varð í þriðja sæti.