Stóri leikskóladagurinn 27. maí

Skóli og frístund Mannlíf

""
Stærsta fagstefna leikskólastarfsfólks er í uppsiglingu í Ráðhúsinu en Stóri leikskóladagurinn verður haldinn í áttunda sinn 27. maí. 
Stóri leikskóladagurinn hefur síðastliðin ár borið metnaðarfullu og fjölbreyttu starfi leikskólanna gott vitni og hefur skapað sér sess sem ein stærsta fagstefna leikskólafólks sem þar kemur saman til að miðla hugmyndum og kynna starf sitt.
 
Í Ráðhúsi Reykjavíkur verða settir upp tæplega 30 kynningabásar og yfir daginn verður boðið upp á fimm áhugaverða fyrirlestra í Tjarnarbíói. Þá verða afhent hvatningaverðlaun skóla- og frístundaráðs fyrir metnaðarfullt leikskólastarf.
Allir eru velkomnir að kynna sér fjölbreytt þróunarverkefni og nýbreytni í leikskólastarfinu á sýningunni í Ráðhúsinu.