Stjórnendur við sameinaða frístundamiðstöð

Skóli og frístund

""
Guðrún Kaldal verður framkvæmdastjóri. 
Á fundi skóla- og frístundaráðs  9. mars sl. og borgarráði 17. mars var samþykkt að sameina yfirstjórn frístundamiðstöðvanna Kamps og Frostaskjóls frá og með 1. ágúst 2016.
 
Stjórnendateymi sameinaðrar frístundamiðstöðvar skipa eftirfarandi: Guðrún Kaldal framkvæmdastjóri, Þorsteinn V. Einarsson deildarstjóri unglingastarfs, Steinunn Gretarsdottir deildarstjóri barnastarfs og Héðinn Sveinbjörnsson fjármálastjóri. Við óskum þeim velfarnaðar í því starfi að byggja upp sameinaða frístundamiðstöð í Vesturbæ og Miðborg/Hlíðum.