Stefnumótun um frístundaþjónustu

Skóli og frístund Mannlíf

""
Í dag komu saman sextíu fulltrúar ungmenna, foreldra, eldra fólks, starfsfólks og sérfræðinga til að ræða áherslur í stefnumótun um frístundaþjónustu borgarinnar. 
Stýrihópur sem er að móta stefnu um frístundaþjónustu efndi til fundarins í Tjarnarsal Ráðhússins, en hópurinn hefur áður staðið fyrir stórfundi með ungmennum þar sem ræddar voru hugmyndir þeirra um það sem betur mætti fara í frístundamálum. Stýrihópurinn er undir formennsku Sóleyjar Tómasdóttur, forseta borgarstjórnar, og mun hann skila stefnu með hugmyndum um hvernig ýta megi undir blómlegt félagslíf og frístundir í borginni.
 
Fundurinn hófst með ávarpi Sóleyjar Tómasdóttur, forseta borgarstjórnar og formanns stýrihóps um frístundaþjónustu og félagsstarf í Reykjavík. Þá var farið í hópavinnu þar sem hægt var að velja þrjú viðfangsefni: Börn 0-9 ára, unglingar 10-15 ára, ungmenni 16-25 ára, eldra fólk, frístundir almennings og aðstaða.
 
Í öllum hópum var rýnt í það hver grunnfrístundaþjónustan eigi að vera, hvort sem er á vegum borgarinnar eða annarra, hvað eigi að vera hægt að sækja í nærumhverfið og hvað er í lagi að sækja eitthvert annað. Erum verið að dreifa kröftunum of víða? Hvaða starfsemi má missa sín svo setja megi aukinn kraft í aðra þætti þjónustunnar? Einnig hvort og hvernig megi auka virkni viðkomandi aldurshópa í frítímanum og hvernig við getum komið betur til móts við minnihlutahópa og þá sem þurfa meiri hvatningu og stuðning.


Þátttakendur á fundinum voru m.a. fulltrúar foreldra, Reykjavíkurráðs ungmenna, íþrótta- og æskulýðsfélaga, tónlistar, frístundamiðstöðva, þjónustumiðstöðva, sundlauga, félags eldri borgara, menningarstofnana, leik- og grunnskóla, Menntavísindasviðs HÍ og Embættis Landlæknis.
 
Starfshópurinn mun nýta niðurstöðurnar, ásamt gögnum frá stórfundi unglinga í nóvember og fleiri gögnum, við stefnumótuninna sem á að ljúka í haust.