Að þessu sinni eru settir fram fjórir umbótaþættir í áætluninni og átta aðrir áhersluþættir.
Allir starfsstaðir sviðsins setja sér markmið og gera aðgerðaáætlun sem byggja á þáttum í starfsáætlun sviðsins.
Í starfsáætlun er einnig að finna mikið magn tölulegra upplýsinga um skóla- og frístundastarf í Reykjavíkurborg.
Tilgangurinn með starfsáætlun skóla- og frístundasviðs er að innleiða helstu áhersluþætti skólayfirvalda í starfsemina og veita starfsstöðum, leikskólum, grunnskólum og frístundastarfsemi leiðbeinandi viðmið við gerð eigin starfsáætlana.
Áætlun um framfarir, umbætur, þróun og nýbreytni er mikilvæg í allri starfsemi. Það á ekki síst við starfsemi sem tengist skólagöngu og frístundastarfi barna og unglinga sem alast upp við örar samfélagsbreytingar, miklar tækniframfarir og síbreytilega heimsmynd.
Starfsáætlun SFS 2016 (pdf-útgafa)
Starfsáætlun SFS 2016 (flettiútgáfa)