Staða borgarritara auglýst

Stjórnsýsla

""

Borgarstjórinn í Reykjavík hefur auglýst stöðu borgarritara lausa til umsóknar.

Leitað er að kraftmiklum leiðtoga sem býr yfir frumkvæði og faglegum metnaði, er annt um umhverfi sitt, samfélag og  velferð íbúa.

Borgarritari er æðsti embættismaður Reykjavíkurborgar að borgarstjóra undanskildum. Hann fer með forystu og samhæfingarhlutverk í stjórnsýslu og þjónustuveitingu borgarinnar og leiðir umbætur á þeim sviðum. Borgarritari er jafnframt staðgengill borgarstjóra.

Hlutverk- og ábyrgðarsvið

Hlutverk borgarritara er að hafa forystu um að Reykjavíkurborg sé í fararbroddi í þróun þjónustu, stjórnsýslu og rekstri á landsvísu og standist samanburð við framsæknar borgir í alþjóðlegum samanburði.

Í undirbúningi er endurskipulagning á þjónustuveitingu borgarinnar með áherslu á rafræna þjónustu, markvissa nærþjónustu í

hverfum og aukin gæði. Borgarritara er ætlað að leiða þá vinnu.

Undir borgarritara heyra fjármálaskrifstofa, mannréttindaskrifstofa, skrifstofa borgarstjóra og borgarritara, skrifstofa þjónustu

og reksturs og skrifstofa eigna og atvinnuþróunar.

Borgarritari og miðlægar skrifstofur sem undir embættið heyra sjá til þess að stefnumörkun borgarráðs og borgarstjórnar sé fylgt eftir með upplýsingamiðlun og stoðþjónustu við fagsvið borgarinnar, auk þess að halda uppi virku eftirliti með því að framkvæmd sé í samræmi við markaða stefnu og fjárhagslegar heimildir. Þá er borgarritara ætlað að stuðla að lýðræðislegum stjórnarháttum með því að auka gagnsæi og styrkja upplýsingaflæði milli stjórnenda, sviða og stofnana borgarinnar, íbúa og annarra samráðsaðila.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Framhaldsmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi.
  • Farsæl reynsla af rekstri, stjórnun og mannaforráðum.
  • Reynsla af stefnumótunarvinnu og innleiðingu breytinga.
  • Reynsla af því að leiða þjónustu.
  • Reynsla af áætlanagerð og eftirfylgni áætlana.
  • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu.
  • Leiðtogahæfileikar, lipurð og hæfni í mannlegum
  • samskiptum.
  • Framsýni, metnaður, frumkvæði og skipulagshæfileikar.
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku.
  • Kunnátta í öðrum tungumálum er kostur.

Capacent heldur utan um ráðningarferlið fyrir Reykjavíkurborg.

Hægt er að sækja um stöðuna á vef Capacent 



Nánari upplýsingar um starfið veita eftirtaldir starfsmenn Capacent.

Jóna Björk Sigurjónsdóttir

Sími: 540 7109

 

Auður Bjarnadóttir

Sími: 540 7104