Spilandi reiðhjól, risavaxinn kristall og stjarnfræðilegar furðuverur

Skóli og frístund Mannlíf

""
Mörg skemmtileg sköpunarverk verða til sýnis á uppskeruhátíð Biophilia-menntaverkefnisins sem hefst í Ráðhúsinu fimmtudaginn 2. júní. 
Á opnunarathöfn sem hefst kl. 13.00 munu börn sýna fjölbreytt sköpunarverk en eftir það verður opin sýning fyrir gesti og gangandi fram eftir degi og alla helgina. Sóley Tómasdóttir, forseti borgarstjórnar mun opna hátíðina. Sýningarstjóri er Curver Thoroddsen listamaður. 
 
Biophilia-menntaverkefnið byggir á samnefndu listaverki og hugmyndafræði Bjarkar Guðmundsdóttur, þar sem sköpunargáfan er virkjuð sem kennslu- og rannsóknarverkfæri og tónlist, tækni og náttúruvísindi eru tengd saman á nýstárlegan hátt. Áhersla er lögð á að styrkja nemendur í sjálfstæðri hugsun og efla sjálfstraust þeirra með virkri þátttöku, tilraunum, leik og sköpun. Verkefnið er tilraun til þess að brjóta upp hefðbundið kennsluform með þverfaglegri nálgun og spjaldtölvum, þar sem jafnt kennarar sem nemendur kanna nýjar slóðir.
 
Á uppskeruhátíðinni verður sýndur afrakstur þess frjóa starfs sem farið hefur fram í leikskólum, grunnskólum og frístundamiðstöðvum í Reykjavík í norrænu samstarfi um Biophiliu. Sköpunarverkin verða kynnt og sýnd af börnunum með tónlist, máli og myndum.  Þátttakendur í verkefninu eru Austurbæjarskóli, Dalskóli, Frístundamiðstöðin Gufunesbær, Fossvogsskóli, leikskólinn Miðborg, leikskólinn Kvistaborg, Sæmundarskóli, Vogaskóli.
 
Síðastliðin þrjú ár hafa skólar frá Finnlandi, Svíþjóð, Noregi, Danmörku, Íslandi, Færeyjum, Álandseyjum og Grænlandi tekið þátt í Biophilia menntaverkefninu með styrk frá Norrænu ráðherranefndinni. Reykjavík hefur verið leiðandi í því samstarfi. 
 
Biophilia-menntaverkefnið er samstarfsverkefni Mennta- og menningarmálaráðuneytis, Norrænu ráðuherranefndarinnar, Reykjavíkurborgar, Háskóla Íslands og Bjarkar Guðmundsdóttur.