Elstu börnin á leikskólanum Grænuborg opnuðu skemmtilega myndlistarsýningu á Skólavörðustígnum í dag.
Börnin eru öll á Sólskinsdeildinni og þau teiknuðu þekkt kennileiti í næsta nágrenni leikskólans, sjálfa Hallgrímskirkjuna. Myndirnar kallast því skemmtilega á við helsta aðdráttarafl og myndefni ferðamanna í götunni og eru litrík viðbót við menningarflóruna í miðborginni.
Myndlistarsýning barnanna á Grænuborg er orðin að árlegum vorviðburði á Skólavörðuholtinu og er þetta í þriðja sinn sem þau setja upp sýningu á verkum sínum. Verslunareigendur við götuna taka barnamenningunni líka fagnandi og buðu þeir börnunum upp á kakó, osta og vínber í dag þegar sýningin hafði verið opnuð og svo fengu þau að leika sér með krítar og sápukúlur.