Stóri leikskóladagurinn, uppskeruhátíð leikskólanna í Reykjavík, verður haldinn í áttunda sinn föstudaginn 27. maí nk. í Ráðhúsi Reykjavíkur og Tjarnarbíói, kl. 8:30 – 16:00. Meðal þess sem má kynna sér er sögupokinn, vinátta, hverfisfuglinn og læsi.
Stóri leikskóladagurinn hefur síðastliðin ár borið metnaðarfullu og fjölbreyttu starfi leikskólanna gott vitni og hefur skapað sér sess sem ein stærsta fagstefna leikskólafólks sem þar kemur saman til að miðla hugmyndum og kynna starf sitt. Sú hefð hefur skapast að bjóða leikskólum úr einu sveitarfélagi utan Reykjavíkur að taka þátt og vera með kynningu á sínu fagstarfi. Á síðasta ári komu gestirnir alla leið frá Akureyri en í ár verða það leikskólar Garðabæjar.
Í Ráðhúsi Reykjavíkur verða settir upp tæplega 30 kynningabásar og í Tjarnarbíói verður boðið upp á fimm áhugaverða fyrirlestra. Meðal efnis sem fjallað verður um er m.a. Biophiliu- menntaverkefnið í leikskólanum og innleiðingu lýðheilsuverkefnis á vinnustað meðal barna og starfsfólks.
Það nýnæmi verður á dagskránni í ár að hvatningaverðlaun skóla- og frístundaráðs fyrir framsækið leikskólastarf verða afhent á meðan á sýningunni í Ráðhúsinu stendur.
Allir hvattir til að koma og kynna sér áhugavert starf sem fram fer í leikskólum borgarinnar.