Margt bar á góma þegar Dagur B. Eggertsson borgarstjóri heimsótti nemendur í 7. bekk Melaskóla í morgun, en hann hefur heimsótt flestar skóla- og frístundastofnanir í Vesturbæ í þessari viku.
Björgvin Þór Þórhallsson skólastjóri og Helga Jóna Pálmadóttir aðstoðarskólastjóri tóku á móti borgarstjóra þegar hann heimsótti Melaskóla í morgun og fylgdu honum á fund 7. bekkinga. Þeir vildu ræða margt við borgarstjóra, s.s. fyrirhugaðar úrbætur á skólalóðinni, notkun snjalltækja í skólastarfi, hvort heimanám væri nauðsynlegt og hvort ekki mætti hafa sundlaugarnar opnar lengur fram á kvöld. Þá sungu nemendur skólasönginn fyrir borgarstjóra, og sýndu honum ýmis nýyrði sem þeir höfðu smíðað á Degi íslenskrar tungu, t.d. sögnina að knyssa í stað þess að deita.
Borgarstjóri hefur þessa vikuna haft aðsetur sitt í Vesturbæ og var m.a. á íbúafundi í Hagaskóla í gærkvöldi.