Í nóvember efndu Harpa, Stúdío Ólafs Elíassonar og Höfuðborgarstofa til samkeppni um efnilegasta listaverkið sem nýtir sér ljósahjúp Hörpu. Vinningstillaga, Slettireka varð fyrir valinu og verður verkið sýnt á Vetrarhátíð í Reykjavík dagana 4.-7. febrúar 2016.
Höfundarnir eru þeir Halldór Eldjárn og Þórður Hans Baldursson með ljósaverkið Slettireka. „Við ætlum að breyta ljósahjúpi Hörpu í risastóran gagnvirkan striga. Hverjum sem er verður gert mögulegt að myndskreyta strigann með því að klessa á hann sýndarmálningu. Myndskreytingin fer þannig fram að þú opnar vefsíðu á símanum þínum og velur þar úr litum og hvar þú vilt sletta málningu á glerhjúpinn. Áhrifin sjást strax á glerhjúpnum og lýtur sýndarmálningin þar sömu náttúrulögmálum og annar seigfljótandi vökvi þar sem hann tekur að leka hægt og rólega niður. Þetta knýr fram litríkt sjónarspil og opnar þeim sem vilja gátt að því listaverki sem glerhjúpurinn er.“
Halldór og Þórður hafa brennandi metnað fyrir sköpun á gagnvirkum listaverkum. Þeir starfa hjá nýstofnuðu fyrirtæki sínu, Stafla (http://staf.li), sem meðal annars hefur unnið gagnvirk vefverkni í bland við hefðbundnar vefsíður.
Halldór Eldjárn er tónlistarmaður og tölvunarfræðingur. Hann hefur gefið út tvær plötur með hljómsveit sinni Sykur ásamt því að hafa starfað með fjölda tónlistarmanna í gegnum tíðina. Helst ber að nefna í þessu samhengi gagnvirkan strengjakvartett sem hann vann í samstarfi við Úlf Eldjárn tónskáld og Sigurð Oddsson grafískan hönnuð. (http://infinitestringquartet.com)
Þórður Hans er forritari sem komið hefur að gerð nokkurra gagnvirkra listaverka auk þess að hafa áður starfað fyrir íslenskt nýsköpunarfyrirtæki um nokkurt skeið. Í samstarfi sínu vinna þeir að því að blanda saman hugbúnaði, hönnun og tónlist til að skapa áhugaverðar og skemmtilegar upplifanir.
Vinningshafar hljóta 200.000 kr. verðlaunafé og er útfærsla á verkinu hafin í samvinnu við starfsmenn Hörpu og margmiðlunarforritarann Owen Hindley. Í dómnefnd sátu þeir Ólafur Elíasson, Atli Bollason og Svanhildur Konráðsdóttir.
Um vinningstillöguna hafði Atli þetta að segja: „Það var mjög skemmtilegt hvernig vinningstillagan túlkaði ljósahjúpinn bókstaflega sem striga sem borgarbúar gætu málað á að vild. En okkur þótti ekki síður skemmtilegt hvernig hún hvetur til sameiginlegrar sköpunar. Borgarbúar geta sameinast um að mála myndir á ljósahjúpinn sem mótast síðan og breytast eftir því hvernig viðrar. Við erum viss um að verkið eigi eftir að setja mjög skemmtilegan svip á Hörpu á Vetrarhátíð.“ Vetrarhátíð verður sett með frumsýning verksins Sléttreku fimmtudaginn 4.febrúar klukkan 19:30 við Hörpu.
Um Halldór Eldjárn og Þórð Hans
Halldór og Þórður hafa brennandi metnað fyrir sköpun á gagnvirkum listaverkum. Þeir starfa hjá nýstofnuðu fyrirtæki sínu, Stafla (http://staf.li), sem meðal annars hefur unnið gagnvirk vefverkni í bland við hefðbundnar vefsíður.
Halldór Eldjárn er tónlistarmaður og tölvunarfræðingur. Hann hefur gefið út tvær plötur með hljómsveit sinni Sykur ásamt því að hafa starfað með fjölda tónlistarmanna í gegnum tíðina. Helst ber að nefna í þessu samhengi gagnvirkan strengjakvartett sem hann vann í samstarfi við Úlf Eldjárn tónskáld og Sigurð Oddsson grafískan hönnuð. (http://infinitestringquartet.com)
Þórður Hans er forritari sem komið hefur að gerð nokkurra gagnvirkra listaverka auk þess að hafa áður starfað fyrir íslenskt nýsköpunarfyrirtæki um nokkurt skeið. Í samstarfi sínu vinna þeir að því að blanda saman hugbúnaði, hönnun og tónlist til að skapa áhugaverðar og skemmtilegar upplifanir.
Forsaga
Verkefnið á sér fyrirmynd frá Menningarnótt 2014 þegar þeir Atli Bollason og Owen Hindley settu upp gagnvirka listaverkið PONG á glerhjúpi Hörpu. Leikurinn var endurtekinn á Sónar 2015 með verki sem byggt var á nýrri tækni sem umbreytti hljóðmerkjum í ljós og þýddu tónlist Sónar í síbreytileg mynstur á hjúpi Hörpu. Með verkefninu er kominn fram nýr og stærri vettvangur fyrir stafræna list í Reykjavík og er ætlað að marka Reykjavík sess sem framsækinni höfuðborg á sviði tækni og lista.