Skráning að hefjast í sumarstarf barna og unglinga

Skóli og frístund Íþróttir og útivist

""
Í sumar verður fjölbreytt framboð af afþreyingu og fræðslu fyrir börn og unglinga í Reykjavík. Finna má upplýsingar um sumarstarfið á frístundavefnum www.fristund.is.


Upplýsingar um starf frístundamiðstöðva, siglinganámskeið, sumarbúðir, íþróttanámskeið, reiðnámskeið og margt fleira sem í boði er er að finna á vefnum www.fristund.is.
 
Skráning
 
Skráning í sumarstarf frístundaheimila (sumarfrístund), sértækt félagsmiðstöðvastarf, siglinganámskeið í Siglunesi og á dýranámskeið í Húsdýragarðinum hefst mánudaginn 25. apríl kl. 8:20 en skráning í sumarsmiðjur fyrir börn sem eru að ljúka 5.-7. bekk hefst 18. maí n.k.


Skráning í sumarstarf á vegum Reykjavíkurborgar fer fram á vefnum http://sumar.fristund.is.
 
Skráning í sumarstarf frístundaheimilanna, sértækt félagsmiðstöðvastarf og siglinganámskeið þarf að fara fram fyrir kl. 12:00 á föstudögum eigi barn að byrja á mánudeginum á eftir. Skráning á dýranámskeið þarf að fara fram á miðvikudegi í vikunni áður en námskeið hefst. Foreldrum er bent á að skrá börn sín tímanlega þar sem námskeiðin geta fyllst fljótt.
 
Athugið að ef foreldrar geta ekki nýtt sér rafræna innritun geta þeir farið á frístundamiðstöðvar borgarinnar (helst fyrir hádegi) og fengið aðstoð við skráningu. Ekki er hægt að skrá börn í sumarstarf Reykjavíkurborgar í gegnum síma en hægt er að fá leiðbeiningar símleiðis hjá þjónustuveri Reykjavíkurborgar í síma 411-1111 ef foreldrar eru við nettengda tölvu.
 
Skráning í sumarstarf annarra fer fram hjá viðkomandi félagi/aðila.