Flestum grunnskólum borgarinnar verður slitið í dag eða á morgun og halda þá 14.700 skólabörn út í sumarsólina.
Í frístundaheimilum borgarinnar verður boðið upp á sumarfrístundastarf fyrir börn í 1.-4. bekk. Einnig bjóða frístundamiðstöðvar borgarinnar upp á fjölbreytt námskeið og sumarsmiðjur fyrir börn og unglinga.
Upplýsingar um starf frístundamiðstöðva, siglinganámskeið, sumarbúðir, íþróttanámskeið, reiðnámskeið og margt fleira sem í boði er er að finna á vefnum www.fristund.is.
Sumarleyfi leikskóla eru ákveðin í samstarfi við foreldra í sérhverjum skóla að undangenginni skoðanakönnun.