Skólasafnamiðstöð lögð niður

Skóli og frístund

""
Borgarráð samþykkti í dag að Skólasafnamiðstöð, sem verið hefur til húsa í Háaleitisskóla/Hvassaleiti, verði lögð niður frá og með 1. júlí næstkomandi.
Með þessum breytingum verður leitast við að styrkja samstarfið við Borgarbókasafnið en færa hluta af fjármagni og verkefnum skólasafnamiðstöðvar út til grunnskólanna. 



Ákvörðunin felur í sér að þrjú störf verða lögð niður, þar af tveggja bókasafnsfræðinga. Það fjórða, stöðugildi forstöðumanns, verður fært til skrifstofu skóla- og frístundasviðs, og mun hann m.a. sjá um innkaup og ráðgjöf til skólanna. Verkefni Skólasafnamiðstöðvar færast að öðru leyti til skólasafna grunnskólanna.  Samhliða þessum breytingum verður unnið að auknu samstarfi Borgarbókasafns Reykjavíkur og skólasafna grunnskólanna.
 
Kostnaður vegna Skólasafnamiðstöðvar á liðnu ári var 25,6 milljónir króna, þar af launakostnaður 18,6 milljónir, annar kostnaður um 5 milljónir og akstur með bækur um 2 milljónir.