Fulltrúar í ráðinu kynntu sér skólastarf á Kjalarnesi og skoðuðu skólahúsnæði og skólalóðir.
95. fundur ráðsins var haldinn í Klébergsskóla miðvikudaginn 9. mars og fóru fundarmenn í vettvangsferð um skólann og spjölluðu við nemendur og starfsfólk. Þá skoðuðu þeir leikskólann Bakkaberg/Berg.
Elsti hluti Klébergsskóla var byggður 1921 en nýjasta byggingin frá árinu 2005, um það leyti sem leikskólinn Berg tók til starfa á Kjalarnesi.
Nýlega var skipaður starfshópur sem á að skoða hagræði við aukið samstarf skólanna tveggja.