Selið heimsækir KSÍ

Skóli og frístund

""
Börnin á frístundaheimiliinu Selinu í Melaskóli fóru á dögunum í heimsókn til KSÍ til að kynna sér fótboltaíþróttina. 
Á haustdögum var stofnaður fótboltaklúbbur í  frístundaheimilinu Selinu. Hugmyndin að gera eitthvað skemmtilegt í fagstarfinu tengt fótbolta þar sem áherslan yrði lögð á að kveikja áhuga frekar en bara til þess að spila fótbolta.

Í skráningunni voru stelpur sérstaklega hvattar til þess að skrá sig. 


Á dögunum fóru svo börnin í vettvangsheimsókn í höfuðstöðvar KSÍ í Laugardalnum þar sem tekið var vel á móti þeim. Börnin fengu að skoða leikaðstöðu, búningsherbergi, fréttamannastúkur, þvottahús og sjá áritaðar treyjur leikmanna.

Í lokin fengu svo öll börnin að eiga myndir af landsliðum Íslands, karla og kvenna.
 
Alls var farið í fjórar ferðir og alls fóru 20 stelpur og 37 strákar í ferðina og var mikil ánægja með klúbbinn.