Grunnskólanemendur í Árbæ og Breiðholti hafa lagt sitt af mörkum til hverfisskipulags með því að gera líkan af hverfinu sínu.
Nemendur í 6. bekk Ártúnsskóla, Árbæjarskóla, Selásskóla, Norðlingaskóla, Breiðholtsskóla, Fellaskóla, Hólabrekkuskóla, Seljaskóla og Ölduselsskóla byggja líkan af hverfinu sínu undir leiðsögn kennara og starfsfólks umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkur en áður fá nemendur fengið kynningu um skipulag og arkitektúr til þess að leiðbeina þeim við gerð líkansins.
Í framhaldi verða líkönin notuð við samráð um hverfisskipulag í hverfinu en þessi aðferð þykir ná mjög vel til ólíkra hagsmunaaðila, sérstaklega þeirra sem láta vanalega ekki mikið í sér heyra á hefðbundnum samráðsfundum. Nemendurnir fá að vera fyrstir til að setja hugmyndir sínar fyrir hverfið inn á líkanið með litlum miðum með athugasemdum sem settir eru á viðeigandi stað og eru athugasemdirnar skráðir niður af starfsfólki umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkur.
Á næstu vikum verður íbúum í nágrenni skólanna boðið á samráðsfund þar sem þeim gefst færi á að gera athugasemdir við drög að tillögum ráðgjafa hverfisskipulagsins um framtíðarsýn fyrir hverfið og koma eigin hugmyndum um það sem má bæta í hverfinu á framfæri.
Skapandi samráð verður einnig haft við nemendur í Hlíðum og Háteigshverfi vegna hverfisskipulags.
Skapandi samráð verður einnig haft við nemendur í Hlíðum og Háteigshverfi vegna hverfisskipulags.